Sleppa leiðarkerfi
Mínar stillingar - hnappurSendu okkur fyrirspurn   Venjulegt letur Stærra letur Breyta litum á bakgrunn og texta   Minni skjábreidd (800 dílar) Venjuleg skjábreidd (1024 dílar) Meiri skjábreidd (1280 dílar)   Orðalisti/Orðskýringar Sjá   RSS Veita Sjá   This page in English


 
Sjá ehf.
Þjónusta
Viðskiptavinir
Greinar og fróðleikur

Fyrirspurnir
Sendu okkur fyrirspurn

Aðgengismál

Sjá leggur metnað sinn í að gera vefinn sinn sem aðgengilegastan öllum notendum. Við trúum því að aðgengilegri vefur sé betri og notendavænni vefur líka. Það sem meðal annars hefur verið gert til að stuðla að góðu aðgengi að vef Sjá:

  • Hægt er að stækka letur á vefnum (A hnapparnir efst til hægri)
  • Hægt er að breyta um bakgrunnslit til að auðvelda notendum með skerta sjón eða lesblindu, lesturinn. Smellt er á hnappinn dökka bakgrunninum og hvíta Ainu.
  • Fyrir notendur skjálesara er tengill til að komast beint í meginmál vefjarins.
  • Boðið er upp á Mínar stillingar (frá stillingar.is) sem nýtist mörgum notendum til dæmis þeim sem hafa skerta sjón eða eru lesblindir. Hægt er að stilla texta á margvíslegan hátt og má þar nefna orðabil, stafabil, stafastærð, stafagerð og svo framvegis.
  • Allir myndatenglar og allar myndir utan skreytimynda hafa skýringartexta (ALT texta). Aðrar myndir eru skilgreindar sem tómar þannig að skjálesari lesi þær ekki eða birtar með CSS tækni.
  • Leitast hefur verið við að hafa ALT textann skýran og skilmerkilegan þannig að efni myndar eða auglýsingar skili sér vel.
  • Hægt er að skoða allt efni vefjarins í skjálesurum en þá nota blindir og sjónskertir notendur.
  • Hreyfihamlaðir notendur geta vafrað um vefinn án þess að nota músina.
  • Öll tenglaheiti eru skýr.
  • Allar skammstafanir hafa annað hvort verið teknar út eða eru með útskýringu.
  • Öll viðhengi eru útskýrð. Til dæmis kemur fram tegund og stærð skjals.
  • Virknissíður (til dæmis Fyrirspurn) hafa skýrar leiðbeiningar.
  • Allt efni vefjarins er á html sniði (við forðumst að nota pdf skjöl og þar sem við notum þau, bjóðum við upp á útgáfu sem er aðgengileg skjálesurum.)
  • Vefurinn virkar án forskrifta (enska: javascripts) í öllum meginatriðum.
  • Vefurinn hefur verið sniðinn að öllum helstu vöfrunum.
  • Orðalisti/orðskýringar eru í boði fyrir flóknari orð og sérfræðiheiti

Ef einhverjar ábendingar, spurningar eða athugasemdir eru varðandi aðgengismál á vef Sjá má senda póst á Sigrúnu Þorsteinsdóttur á netfangið sigrun@sja.is eða hringja í síma 511-3110 og við munum leitast við að leysa úr þeim vandamálum sem upp gætu komið.


 
Einu sinni var...
Skoða skýrslu
Notendaprófanir
Skráðu þig
Námskeið í aðgengismálum
Viltu vita meira um bætt aðgengi að Netinu?

RSS fréttir
 
Vottun fyrir forgang IVottun fyrir forgang II