Sleppa leiðarkerfi
Mínar stillingar - hnappurSendu okkur fyrirspurn   Venjulegt letur Stærra letur Breyta litum á bakgrunn og texta   Minni skjábreidd (800 dílar) Venjuleg skjábreidd (1024 dílar) Meiri skjábreidd (1280 dílar)   Orðalisti/Orðskýringar Sjá   RSS Veita Sjá   This page in English


 
Sjá ehf.
Þjónusta
Viðskiptavinir
Greinar og fróðleikur

Fyrirspurnir
Sendu okkur fyrirspurn

Aðgengisúttekt

Hvað er aðgengi á Netinu?

Aðgengi á Netinu vísar til þess að hvaða miklu leyti vefur er aðgengilegur öllum notendum, þar með töldum fötluðum notendum. Á síðari árum hefur meðvitund um þessi mál aukist töluvert. Fjölmargar ástæður eru fyrir því að vefur ætti að vera aðgengilegur öllum notendum. Gott er að hafa í huga að bætt aðgengi vefja er ekki einungis til bóta fyrir fatlaða heldur skilar það sér til allra notenda.

Af hverju aðgengi á Netinu?

Fyrir utan augljósar ástæður eins og þær siðferðilegu þá þarf að taka fjárhagslegar og jafnvel lagalegar ástæður með í reikninginn. Fatlaðir notendur eru ekki einungis blindir, heyrnarlausir eða hreyfihamlaðir notendur heldur eru fjölmargir aðrir notendur sem hafa skerta getu til að njóta þess sem er í boði á Netinu. Meðal annarra má nefna aldraða, lesblinda, greindarskerta, sjónskerta og þá sem hafa tímabundna hömlun eða skerta getu til dæmis vegna slyss eða veikinda. Gott er að hafa eftirfarandi í huga:

  • 10-12% landsmanna hafa einhverja fötlun
  • Meira en 90% vefsíðna eru ekki aðgengilegar
  • Fatlaðir einstaklingar hafa jafnvel meiri not af vefsíðum en aðrir
  • Aðgengisprófanir stuðla að skilvirkari notkun á vefjum
  • Aukið aðgengi er ekki bara hagur fatlaðra, heldur allra notenda
  • Í nágrannalöndum er komið í lög, að síður opinberra stofnanna sem og flestra fyrirtækja þurfi að vera aðgengilegar öllum notendum, óháð fötlun eða getu

Hvenær þarf að huga að aðgengi á Netinu?

Gott er að hafa aðgengi á Netinu í huga:

  • Þegar þú ert óviss hvernig vefurinn þinn stendur gagnvart fötluðum notendum
  • Þegar athugasemdir hafa borist vegna þess að vefurinn er óaðgengilegur tilteknum hópi notenda (til dæmis sjónskertum)
  • Þegar þú vilt vera viss um að allt efni á þínum vef skili sér til allra notenda óháð fötlun eða getu þar með talið auglýsingar og efni á PDF sniði
  • Þegar þú vilt vera viss um að vera búin(n) undir nýjar lagasetningar varðandi aðgengi á Netinu
  • Þegar þú vilt fylgja því sem er að gerast annars staðar í nágrannalöndunum
  • Þegar þú ert að uppfæra gamlan vef
  • Þegar þú opnar nýjan vef eða gamli vefurinn uppfærður og vilt hafa þessi mál á hreinu

Við skilum:

Aðgengisúttekt með vottun

Úttekt á völdum síðum og vottun á öllum vefnum. Farið er ítarlega í gegnum allar síður vefjarins og vefurinn vottaður.

  • Aðgengissérfræðingur Sjá fer nákvæmlega í gegnum vefinn með þarfir fatlaðra til hliðsjónar
  • Farið er í gegnum valdar síður með sérútbúin tæki eins og skjálesara sem notaður er af blindum notendum
  • Farið er ítarlega í gegnum html kóðann og komið auga á vandamál sem gætu hindrað notkun fatlaðra notenda á vefnum
  • Skýrslu með athugasemdum og tillögum að úrbótum er skilað
  • Viðskiptavinur fær gagnlegar leiðbeiningar varðandi aðgengi á Netinu
  • Vottunarferli hefst
  • Náin samvinna er á milli ráðgjafa Sjá og viðskiptavina varðandi úrlausnir, allt sniðið að þörfum viðskiptavinarins
  • Vefur er vottaður

Aðgengisyfirlit (án vottunar)

Yfirlit á 5-10 síðum

  • Yfirlitið gefur góða mynd af stöðu vefjarins gagnvart fötluðum notendum
  • Yfirlitið er hentugt fyrir þá sem eru ekki að hugsa um að votta vefsíðuna sína en vilja fá svart á hvítu hver staðan er varðandi aðgengi fatlaðra að vefnum

Hægt er að framkvæma matið á hvaða tímapunkti sem er það er að segja allt frá fyrsta uppkasti að vef, þegar vefur hefur verið settur í loftið og allt þar á milli.

Skjáskot af skýrslu Annað skjáskot af skýrslu

Viðskiptavinir sem hafa notað þjónustuna:

Bankar, fjármálafyrirtæki, tryggingafélög, ríkisstofnanir, sveitafélög og einkafyrirtæki.

Umfang verkefnis:

Aðgengisúttekt fer eftir umfangi vefjarins. Umfang vefjarins er metið og Sjá skilar tilboði. Meðaltími fyrir aðgengisúttekt er um 2 vikur frá úttekt að skýrslu.

 

Aðgengisyfirlit er yfirleitt framkvæmt á 5-10 síðum og má framkvæma hvenær sem er á vinnslutíma vefjar allt frá uppkasti í fullbúinn vef. Meðaltími fyrir aðgengisyfirlit er 1 dagur.

 

aftur upp

 
Þig vantar Flash spilara
Einu sinni var...
Skoða skýrslu
Notendaprófanir
Skráðu þig
Námskeið í aðgengismálum
Viltu vita meira um bætt aðgengi að Netinu?

RSS fréttir
 
Vottun fyrir forgang IVottun fyrir forgang II