Sleppa leiðarkerfi
Mínar stillingar - hnappurSendu okkur fyrirspurn   Venjulegt letur Stærra letur Breyta litum á bakgrunn og texta   Minni skjábreidd (800 dílar) Venjuleg skjábreidd (1024 dílar) Meiri skjábreidd (1280 dílar)   Orðalisti/Orðskýringar Sjá   RSS Veita Sjá   This page in English


 
Sjá ehf.
Þjónusta
Viðskiptavinir
Greinar og fróðleikur

Fyrirspurnir
Sendu okkur fyrirspurn

Aðgengisvottun

Í samvinnu við Öryrkjabandalag Íslands skilar Sjá tillögum um hvernig má gera vefinn þinn sem aðgengilegastan fyrir sem flesta hópa fatlaðra og skilar það sér í því að vefurinn hlýtur vottun. Vottað er fyrir Forgang I, Forgang II og Forgang III en Forgangur I er lágsmarkskrafa sem gerð er varðandi aðgengi.

Hvað felst í vottun Sjá og Öryrkjabandalagsins?

Vottun Sjá og Öryrkjabandalagsins felur í sér skuldbindingu fyrirtækis/stofnunar til að fylgja þeim kröfum sem settar eru fram varðandi aðgengi á vefnum. Vefur er „aðgengilegur” ef allir notendur hafa aðgang að og geta notað efni vefjarins óháð fötlun eða getu.

  • Gátlisti Sjá hefur verið í þróun í nokkur ár og hefur verið margprófaður
  • Listinn fylgir í meginatriðum gátlista W3C (World Wide Web Committee), frá Website Accessibility Initiative (WAI) sem gefinn var út 1999
  • WCAG gátlistinn er notaður út um allan heim sem staðall fyrir aðgengi á Netinu. Hins vegar má bæta við að þessi gátlisti (útgáfa 1.0) er kominn nokkuð til ára sinna og hefur Gátlisti Sjá verið uppfærður í samræmi við prófanir á Íslandi og ábendingar íslenskra notenda
  • Gátlisti Sjá er sérstaklega staðlaður miðað við íslenskar aðstæður
  • Gátlistinn hefur verið prófaður á notendum með margs kyns fötlun og meðal annars voru prófaðir notendur með lesblindu, heyrnarleysi, blindu og alvarlega sjónskerðingu
  • Stöðlun Gátlistans skiptir einnig miklu máli þegar haft er í huga hvaða gerð búnaðar eins og skjálesara er notaður á Íslandi
  • Sjá er í reglulegu sambandi við fatlaða notendur og er það ákaflega mikilvægur liður í áframhaldandi starfi og þróun Sjá
  • Þegar þetta er ritað er útgáfa 2.0 af WCAG listanum í þróun og mun vera tekið mið af honum þegar hann verður fullmótaður. Listinn verður í aðalatriðum svipaður þó að nokkrar áherslubreytingar komi til með að verða
  • Gátlistinn frá WCAG (útgáfa 1.0) samanstendur af 14 aðalatriðum sem eru brotin niður í fleiri atriði og er þeim gefinn forgangur 1, 2 og 3 eftir mikilvægi. Gátlisti Sjá er í samræmi við þessi forgangsatriði

Eftirfarandi vefir hafa fengið vottun Sjá

Forgangur I:

Forgangur I og II:

Forgangur I, II og III:


 
Einu sinni var...
Skoða skýrslu
Notendaprófanir
Skráðu þig
Námskeið í aðgengismálum
Viltu vita meira um bætt aðgengi að Netinu?

RSS fréttir
 
Vottun fyrir forgang IVottun fyrir forgang II