Vottun um forgang I: Lágmarkskrafa sem gerð er um aðgengi á vef.
Dæmi:
Vefur verður að uppfylla öll atriðin fyrir forgang I á gátlistanum til að fá vottun.
Vottun um forgang II: Meiri kröfur eru gerðar um aðgengi á vefnum.
Dæmi:
Í forgangi II felst að einnig þarf að uppfylla öll atriði samkvæmt forgangi I.
Vottun um forgang III: Háar kröfur varðandi aðgengi á vefnum.
Uppfylla þarf einnig forgang I og II til að geta fengið vottun um forgang III.
Dæmi:
Í forgangi III felst að einnig þarf að uppfylla öll atriði samkvæmt forgangi I og II.
Forgangur I, Forgangur II
Aðgengisstaðlar Sjá byggjast á stöðlum WAI (Web Accessibility Initiative) og eru staðfærðir og prófaðir á Íslandi í samvinnu við Öryrkjabandalagið.
Til að kanna hvort að vefur er aðgengilegur gerir aðgengissérfræðingur Sjá úttekt á honum. Vefir sem uppfylla þær kröfur sem gerðar eru varðandi aðgengi fá vottun þess efnis á vefi sína sem gildir í 1 ár. Vottunarmerkið tryggir að vefurinn sé aðgengilegur öllum notendum óháð fötlun þeirra eða getu. Vottunin er unnin í samráði við Öryrkjabandalag Íslands og er hægt að velja um þrenns konar stig vottunar.
Listi WAI, WCAG (Web Content Accessibility Guidelines) útgáfa 1 sem Sjá styðst í meginatriðum við er hægt að nálgast á vef W3C (World Wide Web Committee).
Ef notendur telja að vefur Sjá uppfylli ekki þær kröfur sem þeir telja eðlilegt að hann geri til að vera aðgengilegur öllum notendum er viðkomandi beðin(n) að hafa samband við Sigrúnu Þorsteinsdóttur: sigrun@sja.is eða í síma: 511-3110.