Vefur verða að geta virkað alls staðar, hvort sem hann er í borðtölvu, fartölvu eða flökkutækjum eins og lófatölvu og farsíma. Þetta er sérstaklega mikilvægt í dag þar sem allmargir eru komnir með svokallaða 3G síma (enska: Third Generation) og notendur vilja fá aðgang að efni fljótt og á skilmerkilegan hátt. Það er margt sem ekki á heima á vefjum farsíma eins og t.d. stórar myndir, stórar PDF skýrslur, Flash myndefni o.fl. þar sem ekki endilega öll símtæki höndla slíkt.
Af hverju greining og prófun á farsímum?
Mikilvægi nytsemisprófana á vefjum í hefðbundinni tölvu er löngu sannreynt. Þetta er ekki síst mikilvægt þegar kemur að vefjum á farsímum. Einnig er mikilvægt að sníða vefinn að þörfum notenda og greina hvaða efni er mikilvægt að birtist. Mikilvægt er að hafa í huga að efnið sem virkar vel á vefsíðu í tölvu, virkar ekki endilega fyrir notendur farsíma o.s.frv.
Hvenær á að nota greiningu og prófun á farsímum?
Þegar setja á nýjan vef í loftið og ákveða þarf efni og sníða það að þörfum notenda. Einnig þegar vefur er í mótun eða hefur þegar verið birtur. Þjónusta okkar er tvíþætt.
- Þarfagreining á efni og hlutverki vefjarins.
- Notendaprófanir. Vefir eru prófaðir í farsímum með notendum.
Við skilum:
- Þarfagreiningu
- Grófri efnisgrind
- Skýrslu sem lýsir því sem fram kom í prófunum

