Sleppa leiðarkerfi
Mínar stillingar - hnappurSendu okkur fyrirspurn   Venjulegt letur Stærra letur Breyta litum á bakgrunn og texta   Minni skjábreidd (800 dílar) Venjuleg skjábreidd (1024 dílar) Meiri skjábreidd (1280 dílar)   Orðalisti/Orðskýringar Sjá   RSS Veita Sjá   This page in English


 
Sjá ehf.
Þjónusta
Viðskiptavinir
Greinar og fróðleikur

Fyrirspurnir
Sendu okkur fyrirspurn

Fréttir

9. maí 2012

Alþjóðlegi vefaðgengisdagurinn

Í dag, 9. maí, er alþjóðlegi vefaðgengisdagurinn. Við skorum á alla sem vinna við tölvur að taka músina úr sambandi í eina klukkustund og láta okkur svo vita hvernig gekk.

Til hamingju með daginn!


7. maí 2012

Framleiðni og innri vefir

Í nýjasta pistli sínum fjallar Gerry McGovern um framleiðni starfsmanna og raunverulegar ástæður þess að innri vefir standa ekki undir væntingum. Samkvæmt honum er rót vandans aukin krafa um vinnustundir sem í raun felur í sér minni framleiðni.  Skoða þarf innri vefi með það í huga að einfalda ferla og þannig tíma sem fer í verkefni – án þess að bæta við tímum annars staðar. Smellið hér til að lesa pistilinn.


29. mars 2012

Fjórar góðar leiðir til að pirra notendur

Auðvitað er hægt að pirra notendur á ýmsa vegu en í þessari skemmtilegu og fróðlegu samantekt frá System Concepts eru fjórar leiðir nefndar.

  1. Fela mikilvægt efni neðarlega á síðu
  2. Nota tölvutal
  3. Setja mikilvægt efni fram í myndum
  4. Ná athygli notenda með hreyfimyndum sem engin leið er fyrir notandann að slökkva á

4. febrúar 2012

Íslensku vefverðlaunin 2011

Íslensku vefverðlaunin 2011 voru afhent við hátíðlega athöfn í Tjarnarbíói í gær.  Margir glæsilegir vefir voru tilnefndir að þessu sinni.  Sjá má vinningshafana á vef Samtaka vefiðnaðarins.

Hér má sjá umfjöllun um vefverðlaunin í fréttum RÚV 3. febrúar 2012


28. janúar 2012

Lyklaborð fyrir blinda

Árlega stendur Stanford háskóli fyrir samkeppni um frumlegar nýjungar í tengslum við tölvur og tækni. Vinningshugmyndin í ár var lyklaborð á snertiskjá fyrir iPad. Skoða grein um vinningshugmyndina á vef Wire.


24. janúar 2012

Hvernig eiga tenglar að vera?

Í nýjasta pistli sínum kemur Gerry McGovern með góðar ábendingar um hvernig sé best að skrifa tenglaheiti. Þau þurfa að vera lýsandi fyrir það sem undir liggur en mikilvægt er að þau séu ekki of almenn eins og oft er. Eins er mikilvægt að hugsa þau út frá notandanum en ekki innra skipulagi viðkomandi.

Lesa pistil Gerry McGovern: Tips for writing great links


24. nóvember 2011

Vefur Reykjavíkurborgar aðgengilegur fötluðum

Vefur Reykjavíkurborgar hefur nú fengið aðgengisvottun, en vottunin er veitt af Öryrkjabandalaginu og ráðgjafafyrirtækinu Sjá ehf. Í þessu felst að vefurinn er aðgengilegur öllum notendum óháð fötlun eða getu. Jón Gnarr, borgarstjóri, tók á móti fulltrúum Öryrkjabandalags Íslands sem afhentu honum skjal til staðfestingar á vottuninni.

Vottunin felur einnig í sér skuldbindingu Reykjavíkurborgar til að fylgja þeim kröfum sem settar eru fram varðandi aðgengi á vefnum. Miðað er við gátlista Sjá ehf. sem fylgir í meginatriðum gátlista W3C (World Wide Web Committee), frá Website Accessibility Initiative (WAI) sem gefinn var út 1999.


Vefur Reykjavíkurborgar aðgengilegur fötluðum: lesa fréttina


17. nóvember 2011

Verstu vefir í heimi

Við þekkjum það öll að rekast á vonda vefi á vafri okkar um netið.  Hér má finna skemmtilega samantekt um það sem vefmiðillinn Manolith kallar verstu vefi í heimi. Skoða grein.


11. nóvember 2011

Til hamingju með Usability Day!

Í dag er World Usability Day haldinn hátíðlegur víða um heim. Dagurinn í ár er helgaður menntun – Education: Designing for Social Change. Margir áhugaverðir viðburðir eru haldnir á heimsvísu í tilefni dagsins. Skoðið viðburðina hér.


6. nóvember 2011

Til hamingju Reykjavíkurborg

Vefur Reykjavíkurborgar hefur nú hlotið aðgengisvottun Sjá og ÖBÍ um forgang  II. Í þessu felst að ítarlega hefur verið farið í gegnum vefinn og hann aðlagaður að þörfum notenda með ólíkar þarfir.

Þetta er glæsilegur árangur og við óskum borginni til hamingju!


Til hamingju Reykjavíkurborg: lesa fréttina


 
Vottun fyrir forgang IVottun fyrir forgang II