Lyklaborð fyrir blinda
Árlega stendur Stanford háskóli fyrir samkeppni um frumlegar nýjungar í tengslum við tölvur og tækni. Vinningshugmyndin í ár var lyklaborð á snertiskjá fyrir iPad. Skoða grein um vinningshugmyndina á vef Wire.
Hvernig eiga tenglar að vera?
Í nýjasta pistli sínum kemur Gerry McGovern með góðar ábendingar um hvernig sé best að skrifa tenglaheiti. Þau þurfa að vera lýsandi fyrir það sem undir liggur en mikilvægt er að þau séu of almenn eins og oft er. Eins er mikilvægt að hugsa þau út frá notandanum en ekki innra skipulagi viðkomandi.
Lesa pistil Gerry McGovern: Tips for writing great links
Vefur Reykjavíkurborgar aðgengilegur fötluðum
Vefur Reykjavíkurborgar hefur nú fengið aðgengisvottun, en vottunin er veitt af Öryrkjabandalaginu og ráðgjafafyrirtækinu Sjá ehf. Í þessu felst að vefurinn er aðgengilegur öllum notendum óháð fötlun eða getu. Jón Gnarr, borgarstjóri, tók á móti fulltrúum Öryrkjabandalags Íslands sem afhentu honum skjal til staðfestingar á vottuninni.
Vottunin felur einnig í sér skuldbindingu Reykjavíkurborgar til að fylgja þeim kröfum sem settar eru fram varðandi aðgengi á vefnum. Miðað er við gátlista Sjá ehf. sem fylgir í meginatriðum gátlista W3C (World Wide Web Committee), frá Website Accessibility Initiative (WAI) sem gefinn var út 1999.
Vefur Reykjavíkurborgar aðgengilegur fötluðum: lesa fréttina
Verstu vefir í heimi
Við þekkjum það öll að rekast á vonda vefi á vafri okkar um netið. Hér má finna skemmtilega samantekt um það sem vefmiðillinn Manolith kallar verstu vefi í heimi. Skoða grein.
Til hamingju með Usability Day!
Í dag er World Usability Day haldinn hátíðlegur víða um heim. Dagurinn í ár er helgaður menntun – Education: Designing for Social Change. Margir áhugaverðir viðburðir eru haldnir á heimsvísu í tilefni dagsins. Skoðið viðburðina hér.
Til hamingju Reykjavíkurborg
Vefur Reykjavíkurborgar hefur nú hlotið aðgengisvottun Sjá og ÖBÍ um forgang II. Í þessu felst að ítarlega hefur verið farið í gegnum vefinn og hann aðlagaður að þörfum notenda með ólíkar þarfir.
Þetta er glæsilegur árangur og við óskum borginni til hamingju!
Til hamingju Reykjavíkurborg: lesa fréttina
Þróun í átt til þjónustu
Gerry McGovern hefur undanfarið fjallað heilmikið um mikið um mikilvægi þess að setja þjónustu í forgrunn. Þróunin er því frá áherslu á sölu yfir í þjónustu, sem er lykillinn til þess að ná árangri í viðskiptum á netinu – sem og annars staðar.
Hér má sjá nýjasta pistil Gerry McGovern.
Námskeið: viðskipti um vefinn
Opni háskólinn í HR býður nú upp á áhugavert og hagnýtt námskeið um viðskipti um vefinn. Sjá kemur að skipulagningu og kennslu hluta námskeiðsins. Námskeiðið hentar öllum þeim sem stunda eða hafa hug á að stunda viðskipti á netinu og byggja upp farsælan rekstur með sölu á vöru og þjónustu á þessu öfluga markaðstorgi. Nánari upplýsingar um námskeiðiðm á finna á vef Opna háskólans.
Netnotkun Íslendinga
Íslendingar eru enn heimsmeistarar í netnotkun. Samkvæmt Hagtíðindum Hagstofunnar er nettenging er til staðar á 93% íslenskra heimila en árleg fjölgun nettengdra heimila hefur verið að meðaltali 2% síðustu fimm ár. Fjölgunin er þó minni á milli áranna 2010 og 2011 en á fyrri árum.
Athygli vekur þó að samkvæmt samantektinni hafa ríflega 4% landsmanna á aldrinum 16–74 ára aldrei notað netið, hins vegar nota 93% netnotenda netið daglega. Einnig hefur orðið aukning hefur orðið á notkun Íslendinga á samskiptasíðum, úr 70% netnotenda árið 2010 í 76% nú. Skoða má Hagtíðindin hér.
Tregi notandinn
Í nýjasta Cooper Journal kemur Steve Calde áhugaverða punkta varðandi hönnun á minna spennandi viðmóti, þ.e. viðmót sem notandanum finnst ekki skemmtilegt eða áhugavert að vinna með. Hann talar um trega notandann í því samhengi en þá í merkingunni ófús (e. reluctant user). Skemmtileg lesning – hægt er að nálgast pistilinn hér.

