Hvað gerir Sjá?
Sjá aðstoðar fyrirtæki við að meta vefi sína og gera þá betri. Sjá hefur unnið fjölda verkefna fyrir ýmis fyrirtæki á þessu sviði. Við vinnum með vefsíður, innri vefi og hugbúnað eða kerfi. Við gerum þetta:
- Vinnum undirbúningsvinnu ef þú ert að bæta við, breyta eða búa til nýjan vef
- Höfum umsjón með stefnumótun, þarfagreiningu og framtíðarsýn vefja
- Finnum út hvaða virkni og efni ætti að vera á vefnum
- Metum hvar vefurinn þinn stendur í samanburði við aðra vefi
- Könnum hvort notendur átta sig á því hvernig á að nota vefinn þinn
- Rannsökum hvernig notendur upplifa vefinn þinn og hversu ánægðir þeir eru með hann
- Hjálpum við að finna nýjar hugmyndir og útfærslur fyrir vefinn þinn
- Veitum ráðgjöf um hvernig vefurinn þinn þarf að vera svo hann sé aðgengilegur fötluðum
Hvenær ættir þú að leita til Sjá?
Sjá veitir ráðgjöf og beitir fjölbreyttum aðferðum sem nýtast á öllum þróunarstigum. Leitaðu til okkar þegar:
- Þú ætlar að smíða nýjan vef
- Nýtt eða breytt veftré liggur fyrir
- Nýtt eða breytt útlit á vefnum liggur fyrir
- Þú vilt skýra framtíðarsýn
- Þú vilt athuga hvað notendum finnst um vefinn þinn
- Þú vilt skyggnast inn í hvað markhópnum þínum finnst um vefinn þinn
- Þú vilt tryggja að vefurinn þinn sé notendavænn
- Þú vilt að vefurinn sé aðgengilegur fyrir alla
- Þú vilt fá nýjar hugmyndir fyrir vefinn þinn
- Þú hefur ekki tíma til að gera allt á eigin spýtur
Af hverju ættir þú að leita til Sjá?
Þú ættir að leita til Sjá vegna þess að:
- Við erum sérfræðingar í þessum málum
- Við höfum reynsluna – höfum unnið ótal svona verkefni
- Við erum óháð, erum ekki að selja lausnir heldur hugsum út frá þínum þörfum
- Við komum vefmálunum í lag
- Við hjálpum þér að gera enn betur
- Til að spara, góður undirbúningur skilar sér margfalt á heildina litið
- Til að fá upplýsingar um notendavæni og ánægju notenda
- Til að fá stöðu vefjarins staðfesta, skýrslu sem gaman er að lesa og tillögur að úrbótum
- Til að fá raunverulegar niðurstöður sem þú getur byggt frekari ákvarðanatöku á
Ertu ekki viss um hvaða lausn henti þínu fyrirtæki?
Skoðaðu nánar hvernig Sjá getur hjálpað þér að velja
vefumsjónarkerfi.
Ertu ekki viss um hvaða breytingar eigi að fara út í? Er erfitt að samræma þarfir notenda, samstarfsmanna og hönnuða?
Skoðaðu nánar eftirfarandi þjónustu Sjá:
Rýnihópar og
þarfagreining.
Er vefurinn þinn aðgengilegur öllum – líka fötluðum notendum?
Skoðaðu nánar upplýsingar um
aðgengisúttektir og hvernig Sjá veitir
vottanir á vefjum í samstarfi við Öryrkjabandalag Íslands.