Kaupþing banki
Við mótun, útfærslu og uppsetningu innri vefjar Kaupþings banka samstæðunnar fengum við verkefnisstjóra frá Sjá okkur til aðstoðar, sú samvinna reyndist okkur vel og ég mæli eindregið með þjónustu Sjá ehf.
Sigurjón Ólafsson, vefstjóri Kaupþings banka
Samband íslenskra sparisjóða
Sparisjóðirnir vildu gera Heimbankann aðgengilegan öllum og fengum við Sjá ehf. til liðs við okkur í það verkefni. Mjög vel tókst til, við og viðskiptavinir erum mjög ánægð með niðurstöðuna. Auk þess höfum við nýtt þjónustu Sjá í gegnum tíðina við yfirferð og þróun vefja Sparisjóðanna, og hefur það samstarf gefist vel í alla staði.
Gísli Jafetsson, Sambandi íslenskra sparisjóða
Landsbanki Íslands
Í gegnum árin höfum við fengið Sjá til að framkvæma prófanir með notendum á vefjum okkar til að gera þá notendavænni. Þjónusta Sjá er fagleg og skilar niðurstöðum sem virka. Við getum mælt með Sjá.
Viggó Ásgeirsson, forstöðumaður markaðs- og vefdeilda Landsbankans.
Altex ehf.
Sjá aðstoðaði okkur við að koma upp vefversluninni www.primavera.is. Ferlið allt gekk mjög vel og stóðst okkar væntingar í alla staði.
fyrir hönd. Altex ehf., Ingimar Ísaksson og Baldur Dagbjartsson
Landsvirkjun
Við nýttum þjónustu Sjá ehf. við þróun, prófanir og verkefnastjórn á hugbúnaðinum Grænt bókhald. Við mælum hiklaust með þjónustu Sjá ehf.
Ragnheiður Ólafsdóttir, umhverfisstjóri Landsvirkjunar.
Fasteignamat ríkisins
Til að gera vefinn okkar aðgengilegan fyrir alla nýttum við okkur þjónustu Sjá sem er til fyrirmyndar í alla staði og sérfræðiþekking Sjá geysilega mikil á þessu sviði.
Kristín Ósk Hlynsdóttir, vefstjóri Fasteignamats ríkisins
Tölvumiðstöð sparisjóðanna
Við nýttum þjónustu Sjá ehf. við þróun, prófanir og viðmótshönnun á Heimabankanum. Þjónustan var til fyrirmyndar og skilaði okkur niðurstöðum umfram væntingar.
Gunnar Hreinsson, verkefnastjóri
Reykjavíkurborg
Með samstarfinu við Sjá teljum við okkur hafa náð verulegum árangri í notendavænu viðmóti vefs borgarinnar og verulegri hagræðingu um leið.
Hreinn Hreinsson, Upplýsingafulltrúi Reykjavíkurborgar
Icelandair
Icelandair hefur nýtt sér þjónustu Sjá ehf. við þróun á vefjum fyrirtækisins en Sjá framkvæmdi prófanir á nýrri hönnun fyrir okkur. Niðurstöður úr þeim prófunum voru geysilega gott innlegg í þeirri vinnu og nýttust sérstaklega vel til auka gæði í vefhönnunarferlinu. Niðurstöðum var skilað hratt og örugglega og settar fram af mikilli fagmennsku. Samstarfið við Sjá ehf var því mjög ánægjulegt.
Vilborg Guðnadóttir, verkefnastjóri - vefþróun

