Hin vinsælu námskeið í aðgengismálum vefja hefjast aftur með haustinu. Aðgengismál fatlaðra er sífellt að verða fyrirferðarmeira í umræðunni enda ættu allir notendur að hafa tækifæri til að nálgast upplýsingar á vefjum sem og að hafa tækifæri til að taka þátt í málefnum líðandi stundar til jafns á við aðra. Aðgengismálin eru einnig nátengd hugmyndum um meiri sýnileika í leitarvélum og farið verður yfir þau atriði sem bæði gagnast leitarvélum sem og öllum notendum vefja.
Boðið er upp á sérsniðin námskeið að þörfum fyrirtækja og stofnana. Það sem vinnst með slíkum námskeiðum er margþætt:
Leiðbeinandi á námskeiðunum er Sigrún Þorsteinsdóttir, sérfræðingur í aðgengismálum fatlaðra að Netinu.
Fyrir verðupplýsingar og tilboð, vinsamlegast hafið samband við SJÁ í síma 511-3110 eða með því að senda okkur fyrirspurn.