Ráðstefnan Aðgengi á Netinu: hvar erum við stödd? verður haldin á vegum SJÁ í samvinnu við forsætisráðuneytið og Öryrkjabandalag Íslands (ÖBÍ) þann 14. nóvember næstkomandi.
Upplýsingasamfélagið á Netinu er ekki aðgengilegt öllum. Um 90% vefsíðna eru óaðgengilegar fötluðu fólki. Fyrirtæki og stofnanir á Íslandi sem halda úti vefjum hafa verulega tekið við sér í aðgengismálum á Netinu og mörg leggja sérstaka áherslu á að koma til móts við þarfir fatlaðra notenda - enn er þó langt í land. Á ráðstefnunni verður farið yfir stöðu aðgengismála á Íslandi, hvaða viðmið eru til, hvað fyrirtæki og stofnanir eru að gera til að sinna þessu og hvernig er hægt að gera betur. Þess má geta að leitarvélar eins og Google, Yahoo og fleiri eru stundum kallaðar blindir notendur og því á þessi ráðstefna erindi til þeirra sem hafa hug á að koma vörum og þjónustu á framfæri á leitarvélunum á Netinu.
Ráðstefnan verður frá klukkan 9-12 á Grand Hotel í Reykjavík.
Verð er 9.900 kr með morgunverði.
Dagskrá ráðstefnu:
8.30 - Skráning
9.00 - ÖBÍ: Upphafsorð
9.15 - Sigurður Davíðsson, forsætisráðuneyti: Stefna og viðmiðunarreglur
fyrir opinbera vefi
9.30 - Sigrún Þorsteinsdóttir frá SJÁ: Hver er staðan?
9.45 - Már Örlygsson frá Hugsmiðjunni: Stillingar.is
10.00 - Anna Ingibergsdóttir frá TM: TM vefurinn: Aðgengilegur fyrir alla
10.15 - Einar Lee: Sjónskertir notendur og Netið
10.35 - Kaffi
10.50 - Sigurlín Margrét: Aðgengi heyrnarlausra notenda að upplýsingum á Netinu
11.05 - Kristín Ósk frá Fasteignamati ríkisins: Aðgengisstefna Fasteignamats ríkisins
11.20 - Hlynur frá Sjónstöð Íslands: Tæknisvið Sjónstöðvar Íslands
11.40 - Umræður
11.55 - Guðbjörg Sigurðardóttir, forsætisráðuneyti: Lokaorð
12.00 - Ráðstefnu lokið
Skráningar eru hafnar, en einnig er hægt að skrá sig í síma 511-3110.
Athugið takmarkaður sætafjöldi. Táknmálstúlkar verða á staðnum.
Fundarstjóri er Ólöf Rún Skúladóttir


