Sleppa leiðarkerfi
Mínar stillingar - hnappurSendu okkur fyrirspurn   Venjulegt letur Stærra letur Breyta litum á bakgrunn og texta   Minni skjábreidd (800 dílar) Venjuleg skjábreidd (1024 dílar) Meiri skjábreidd (1280 dílar)   Orðalisti/Orðskýringar Sjá   RSS Veita Sjá   This page in English


 
Sjá ehf.
Þjónusta
Viðskiptavinir
Greinar og fróðleikur

Fyrirspurnir
Sendu okkur fyrirspurn

Hádegisverðarfundur um rafræna stjórnsýslu

Miðvikudaginn 14. maí nk standa Sjá og Marimo fyrir hádegisverðarfundi um tækifæri í rafrænni stjórnsýslu á Grand Hótel Reykjavík, fundurinn hefst kl. 12:00 og stendur til kl. 14:00.

Ljóst er að hið opinbera þarf að bæta vefþjónustu og vefsamskipti við íbúa landsins verulega en Ísland kemur afar illa út úr alþjóðlegum samanburði. Á fundinum verður farið yfir vefútfærslur sem falla undir hugtökin rafræn stjórnsýsla, rafræn þjónusta og rafrænt lýðræði. Fjallað verður um aðgengi að opinberum upplýsingum og hvaða tækifæri eru falin í að auðvelda og opna aðkomu einkaaðila að þeim. Farið verður yfir hvernig má nota opinn hugbúnað eða vera hluti af slíkri þróun og hvort til eru hagkvæmar leiðir til að ná miklum árangri á skömmum tíma.

Verð 7900. kr

Innifalinn er hádegisverður; súpa og fiskur að hætti matreiðslumeistarans og kaffi/te.

Dagskrá fundarins:

Hvað gera þeir bestu í rafrænni stjórnsýslu?
- Áslaug Friðriksdóttir, framkvæmdastjóri Sjá ehf.

Opið flæði upplýsinga með þjónustumiðaðri högun
- Ari V. Jóhannesson, framkvæmdastjóri Marimo ehf.

Gögn og gaman: Opinn aðgangur að opinberum gögnum
- Hjálmar Gíslason, tæknistjóri Já

Útfærsla á vef Veðurstofunnar, hvernig býr maður til verðlaunavef?
- Helgi Borg, verkefnastjóri hjá Veðurstofu Íslands

Raunnotkun ríkisgagna
- Hugi Þórðarson, verkefnastjóri hugbúnaðarþróunar hjá Umferðarstofu

Fundarstjóri er Helgi Pétursson,
vef- og útgáfumál – almannatengsl OR

Fundi slitið kl. 14:00.

—-

Skráning:

Fylltu í viðeigandi reiti í skráningarforminu og smelltu svo á Senda skráningu. Staðfesting á skráningu verður send til þín með tölvupósti.

Einnig er hægt að hafa samband í síma 511-3110

Athugið að reiti merkta með stjörnu (*) þarf að fylla út.


*
*
 


Upplýsingar um greiðanda       

      *
      

      *
      

      *
      

      *
      
 
      
      
 
     




 
Vottun fyrir forgang IVottun fyrir forgang II