Sleppa leiðarkerfi
Mínar stillingar - hnappurSendu okkur fyrirspurn   Venjulegt letur Stærra letur Breyta litum á bakgrunn og texta   Minni skjábreidd (800 dílar) Venjuleg skjábreidd (1024 dílar) Meiri skjábreidd (1280 dílar)   Orðalisti/Orðskýringar Sjá   RSS Veita Sjá   This page in English


 
Sjá ehf.
Þjónusta
Viðskiptavinir
Greinar og fróðleikur

Fyrirspurnir
Sendu okkur fyrirspurn

Rýnihópar

Hvað eru rýnihópar?

Rýnihópur er hópur fólks sem kallaður hefur verið saman, oftast um 6 manns, til að taka þátt í umræðum um ákveðið málefni eða vef. Tveir fulltrúar Sjá stýra umræðunum og skráir Sjá nákvæma fundargerð af fundinum.

Af hverju rýnihópar?

Rýnihópar eru góð leið til þess að ná saman miklum upplýsingum á skömmum tíma og henta vel í hugarflugsfundi þar sem verið er að leggja niður fyrir sér hvernig vef við viljum, hvað við viljum að hann geti gert og hvernig hann svarar þörfum notenda. Á þessu er svo byggt til þess að breyta vefnum og bæta hann. Þá auðveldar slík vinna einnig forgangsröðun verkefnum til lengri tíma.

Hvenær á að nota rýnihópa?

  • Þegar þig vantar yfirsýn yfir þarfir notenda eða starfsfólks
  • Þegar ná þarf til margra markhópa innan eða utan fyrirtækisins
  • Þegar ljóst er að vefurinn er ekki að svara þeim þörfum sem hann á að vera að gera og aðgerða er þörf
  • Þegar endurnýja þarf efni og virkni vefjarins
  • Reglulega til þess að fylgjast með því hvernig breyta má og bæta vefinn frá sjónarhóli notandans

Við skilum:

  • Nákvæmum fundargerðum til athugasemda fyrir þátttakendur hvers rýnihóps
  • Samantekt úr öllum rýnihópum þar sem þau atriði sem fram koma eru flokkuð og rætt hvernig koma má til móts við þær þarfir sem komið hafa í ljós

Viðskiptavinir sem hafa nýtt sérfræðingamat:

Heilbrigðisstofnanir, fjármálafyrirtæki, einkafyrirtæki, stéttarfélög, félagasamtök, framhaldsskólar.

Umfang verkefnis:

Misjafnt er hversu margra rýnihópa er þörf í hverju verkefni og fer það eftir umfangi og þeirra markhópa sem þarf að ná til. Miða skal við um 8 klst vinnu við rýnihóp með 6 þátttakendum. Þá þarf að gera ráð fyrir að þátttakendum sé færð gjöf að launum fyrir þátttökuna.


 
Gagnleg usability tips
Skoða skýrslu
Notendaprófanir
Skráðu þig
Námskeið í aðgengismálum
Viltu vita meira um bætt aðgengi að Netinu?

RSS fréttir
 
Vottun fyrir forgang IVottun fyrir forgang II