Hvað er samkeppnisyfirlit?
Samkeppnisyfirlit er eins og nafnið bendir til yfirlit yfir hvaða efni og virkni samkeppnisaðilar eru að bjóða á vefjum sínum. Yfirlitið gefur góða sýn á hvar þinn vefur stendur miðað við þá vefi sem valdir voru til samanburðar. Við getum tekið út íslenska vefi, enska vefi, spænska vefi og vefi á norðurlandamálunum.
Af hverju samkeppnisyfirlit?
Samkeppnisyfirlit er þægileg leið til að átta sig á hvort samkeppnisaðilar hafa tekið upp nýja stefnu eða eru að bjóða upp á annað efni og virkni en eru á þínum vef. Á stuttri kynningu niðurstaðna frá Sjá má fá góða sýn á hversu ólíkur hann er samanburðarvefjunum. Hentar vel þegar verið er að ræða um, endurskoða eða móta framtíðarsýn vefjarins eða þegar taka á ákvörðun um hvert skuli stefna.
Hvenær á að nota samkeppnisyfirlit?
- Þegar þú ert að móta hvaða efni og virkni á að vera á vefnum þínum
- Þegar þig langar að skoða hvar þinn vefur stendur í samanburði við aðra
- Þegar þig langar að sjá hver vefþróunin er hjá öðrum sambærilegum fyrirtækjum
- Þegar þig langar að sjá hvað aðrir eru að bjóða notendum og viðskiptavinum
- Þegar þú þarft að taka ákvörðun um stefnu vefjarins
- Þegar þú vilt sjá hvað er að gerast á vefjum úti í heimi
Við skilum:
Skýrslu þar sem gerð er grein fyrir því sem ólíkt er á vefjunum
Með skýrslunni eru töflur þar sem sjá má nákvæmlega hvaða atriði er til staðar á ólíkum vefjum ásamt samantektum.

Viðskiptavinir sem hafa notað þetta:
Bankar, fjármálafyrirtæki, tryggingafélög og einkafyrirtæki.
Umfang verkefnis:
Oftast eru bornir saman 4 – 5 vefir en þessu má breyta eins og þarf. Umfang vefjanna er metið og Sjá skilar tilboði. Meðaltími fyrir samkeppnisyfirlit er um 6 klst á hvern vef sem tekinn er út.

