Sleppa leiðarkerfi
Mínar stillingar - hnappurSendu okkur fyrirspurn   Venjulegt letur Stærra letur Breyta litum á bakgrunn og texta   Minni skjábreidd (800 dílar) Venjuleg skjábreidd (1024 dílar) Meiri skjábreidd (1280 dílar)   Orðalisti/Orðskýringar Sjá   RSS Veita Sjá   This page in English


 
Sjá ehf.
Þjónusta
Viðskiptavinir
Greinar og fróðleikur

Fyrirspurnir
Sendu okkur fyrirspurn

Sérfræðingamat

Hvað er sérfræðingamat?

Sérfræðingamat felur í sér að nytsemissérfræðingar Sjá fara í gegnum vefi og taka út samkvæmt skilgreindum nytsemisstöðlum og sérfræðiáliti. Markmiðið er að varpa ljósi á eða koma í veg fyrir ýmis vandamál sem snúa að nytsemi og geta valdið notendum vandræðum. Sérfræðingamat er notað í sama tilgangi og notendaprófanir en munurinn er sá að sérfræðingar fara yfir kerfið og skila ábendingum um það sem betur má fara í stað þess að leitað sé til almennra notenda.

Af hverju sérfræðingamat?

Með því að láta hönnun vefjar fara í gegnum nytsemismat þar sem sérfræðingur tekur vefinn út er mögulegt að ákvarða hvernig best er að mæta þörfum notendanna og þar með auka notendavæni viðmótsins. Ef vefur er notendavænn og aðgengilegur er hann mun líklegri til vinsælda þar sem fleiri notendur munu nota hann vegna þess að fólk er mun ánægðara með vef sem er skiljanlegur og þægilegur í framsetningu en þann sem er það ekki. Helsti kostur sérfræðingamats umfram notendaprófanir er sá að það er ódýrara í framkvæmd.

Hvenær á að nota sérfræðingamat?

  • Sérfræðingamat hentar á ýmsum framleiðslustigum, hægt er að meta skissur eða drög sem og á síðari stigum framleiðslunnar
  • Sérfræðingamat hentar einnig fyrir fullgerða vefi sem haldið er úti
  • Þegar meta á stöðuna fyrir breytingar

Við skilum:

  • Skýrslu sem lýsir þeim atríðum sem sérfræðingarnir finna
  • Skýrslunni fylgja myndrænar tilvísanir
  • Niðurstöður má afhenda hönnuðum og framleiðsluaðilum til lagfæringa
  • Mat á næstu skrefum í þróun vefjarins
Skjáskot af skýrslu Annað skjáskot af skýrslu

Viðskiptavinir sem hafa nýtt sér sérfræðingamat:

Bankarnir og aðrir sem eru í mikilli vefþróun, einkafyrirtæki sem og stærri og minni opinberar stofnanir.

Umfang verkefnis:

Sérfræðingamat getur verið allt frá 3 – 4 klst upp í 3 daga vinnu. Umfang verkefnis er skilgreint með viðskiptavini áður en farið er af stað.

 

aftur upp
 
Vottun fyrir forgang IVottun fyrir forgang II