Sjá hefur áralanga reynslu í vefráðgjöf. Við veitum óháða ráðgjöf hvar sem er í ferlinu, hvort heldur um er að ræða vef á undirbúningsstigi, í framleiðslu eða vef sem er þegar í birtingu. Við hjálpum þér að gera vefinn þinn aðgengilegri, notendavænni og sýnilegri í leitarvélum. Viðskiptavinir okkar eru mörg af stærstu fyrirtækjum landsins sem og smærri fyrirtæki, ríkisstofnanir og sveitarfélög.
Fjölmargar ástæður eru fyrir því að vefur ætti að vera aðgengilegur öllum notendum. Gott er að hafa í huga að bætt aðgengi vefja er ekki einungis til bóta fyrir fatlaða heldur skilar það sér til allra notenda sem og leitarvéla! Sjá hefur frá árinu 2004 gert aðgengisúttektir og vottað vefi aðgengilega í samstarfi við Öryrkjabandalag Íslands út frá alþjóðlegum stöðlum. Forgangur 1 er lágmarkskrafa sem gerð er varðandi aðgengi að vefjum en flestir geta uppfyllt strangari kröfur (forgangur 2 og 3). Sjá hefur vottað tugi vefja og má segja að með vottun sé verið að setja ákveðinn gæðastimpil á vefinn. Sjá getur ráðlagt um aðgengi vefja á öllum framleiðslustigum. Nánar um aðgengisúttektir og vottanir.
Prófanir með notendum henta á ýmsum framleiðslustigum og er þarfur liður í þróun allra vefja og kerfa. Með prófunum af þessu tagi má koma til móts við þarfir notendanna og auka þar með notendavæni vefjarins. Notendavænn og aðgengilegur vefur er mun líklegri til vinsælda. Oft má spara stórar fjárhæðir með prófunum en þar er komið í veg fyrir mistök sem gætu orðið dýrkeypt þegar vefur er kominn í loftið. Hvað t.d. ef notandi getur ekki keypt vöru/þjónustu sem þú ert að selja? Nánari um prófanir með notendum.
Sérfræðingamat felur í sér að nytsemissérfræðingar Sjá fara í gegnum vefi og taka út samkvæmt skilgreindum nytsemisstöðlum og sérfræðiáliti. Markmiðið er að varpa ljósi á eða koma í veg fyrir ýmis vandamál sem snúa að nytsemi og geta valdið notendum vandræðum. Sérfræðingamat er notað í sama tilgangi og notendaprófanir en munurinn er sá að sérfræðingar fara yfir kerfið og skila ábendingum um það sem betur má fara í stað þess að leitað sé til almennra notenda. Sérfræðingamat hentar á ýmsum framleiðslustigum, hægt er að meta skissur eða drög sem og á síðari stigum framleiðslunnar. Nánari upplýsingar um sérfræðingamat.
Fyrir nánari upplýsingar, hafið samband við Sjá í síma 511-3110 eða sendið tölvupóst á sja@sja.is