Greiningin felst meðal annars í því að fyrstu viðbrögð notenda af vefnum eru könnuð, sérfræðingar SJÁ fara yfir vefinn og vefurinn metinn út frá stöðlum um aðgengi, nytsemi og innihald vefja. Stöðugreining vefja gefur til kynna hvort nauðsynlegt sé að grípa til frekari ráðstafana eða breytinga í vefmálum. Með því er hægt að setja sér markmið og meta svo, að nokkrum tíma liðnum, hvort markmiðinu hafi verið náð og þá hvernig þarf að bregðast við til að ná því.
Niðurstöðurnar gefa heildarsýn á stöðu vefjarins með tilliti til þessara ólíku þátta. Út frá þessu má greina hvaða hliðar vefjarins ætti að skoða frekar, ef vandamál er til staðar. Að auki má sjá hvernig vefurinn stendur í samanburði við aðra vefi út frá áliti notenda. Ef stöðugreining gefur til kynna að um vandamál sé að ræða má kanna frekar eðli vandamálsins (til dæmis með notendaprófunum) og hvernig má laga það.
Niðurstöðum stöðugreiningarinnar er skilað í stöðluðu 2 – 3 blaðsíðna skjali með myndrænu yfirliti yfir stöðu vefjarins ásamt athugasemdum frá sérfræðingum Sjá.

Sjá hefur unnið stöðugreiningu fyrir 250 opinbera vefi ríkis og sveitarfélaga.
Stöðugreining vefja tekur um einn dag í framkvæmd fyrir hvern vef. Í matinu eru sameinaðar nokkrar aðferðir við mat á vefjum, en saman gefa þær góða vísbendingu um stöðu vefmála.