Þarfagreining Sjá skiptist í nokkra þætti. Fyrst að skilgreina markmið og hvernig hægt er að ná þeim með hjálp hugarflugs- og viðtalsfunda. Rýnihópar með markhópum eða notendahópum eru einnig gjarnan notaðir.
Þegar ofangreint liggur fyrir er hægt að byrja að smíða veftré vefjarins og fara að sjá fyrir sér myndræna framsetningu hans með því að búa til skjámyndaflæði. Skjámyndaflæði sýnir virkni og tengsl einstaka síðna vefjarins. Hér eru helstu ferlin oft teiknuð upp á notendavænan hátt.
Út frá þessu er hægt að smíða kröfulýsingu sem segir til um hvaða virkni og lausnir þarf til að smíða þann vef sem mótaður hefur verið. Kröfulýsinguna er hægt að nýta til dæmis ef velja á vefumsjónarkerfi en einnig til að leggja niður fyrir sér hvaða lausnir eru til í fyrirtækinu og hvaða lausnir þarf að kaupa til viðbótar.
Þarfagreining er forsenda þess að hægt sé að byggja upp framtíðarsýn vefja og vinna svo markvisst að henni. Þarfagreining auðveldar mjög alla vinnu við þróun og viðhald vefja. Ákvarðanataka vegna nýrra atriða sem koma upp, til dæmis hvað varðar efni, innihald eða virkni, verður mun auðveldari þegar þarfagreining liggur fyrir. Ef vefurinn er ekki því minni að umfangi ættu fyrirtæki aldrei að leggja út í mikla þróun eða fjárfestingar án þess að greina fyrst þarfir.

Opinberar stofnanir, sveitarfélög, bankar, fjármálafyrirtæki, tryggingafélög, hagsmunafélög, fyrirtæki í ferðaþjónustu, verslanir og einkafyrirtæki.
Umfangið hefur verið allt frá því að taka 3 vikur upp í nokkra mánuði. Við skilum tilboði eftir að hafa heyrt aðeins um bakgrunn og umfang frá viðkomandi fyrirtæki.