Huga þarf að ýmsu þegar velja skal vefumsjónarkerfi. Mikilvægt er að fyrir liggi skilgreind þarfagreining fyrir vefinn sem á að setja upp. Sjá setur niður ítarlega kröfulýsingu sem byggir á þeim þörfum sem skilgreindar hafa verið og tekur á því hvað kerfið þarf að geta til þess að svara þeim. Í framhaldinu er leitað til aðila um tilboð. Ítarleg kröfulýsing er mikilvæg til þess að þeir framleiðsluaðilar sem leitað er til geri sér grein fyrir umfangi verksins og eigi auðveldara með að gera raunhæft tilboð. Sjá hefur þróað aðferð til að greina og bera saman innsend tilboð og skilar samantekt til viðskiptavinarins.
Mikill fjöldi vefumsjónarkerfa er í boði á Íslandi í dag. Þessi kerfi eru misjöfn hvað varðar umfang og getu þó svo að á yfirborðinu virðist þau mjög sambærileg. Það getur því reynst þrautinni þyngra að velja rétta kerfið. Aðferð Sjá er til þess gerð að bera saman kerfin og tilboðin út frá settum kröfum og þeim þörfum sem liggja fyrir. Það reynist því mun auðveldara að velja rétta kerfið.

Félagasamtök, sveitarfélög, opinberar stofnanir, lífeyrissjóðir og einkafyrirtæki.
Umfang vinnustunda er um 1 vika, sem þó dreifist yfir lengra tímabil – oftast um mánuð.