Hvað felst í vali á vefumsjónarkerfi?
Huga þarf að ýmsu þegar velja skal vefumsjónarkerfi. Mikilvægt er að fyrir liggi skilgreind þarfagreining fyrir vefinn sem á að setja upp. Sjá setur niður ítarlega kröfulýsingu sem byggir á þeim þörfum sem skilgreindar hafa verið og tekur á því hvað kerfið þarf að geta til þess að svara þeim. Í framhaldinu er leitað til aðila um tilboð. Ítarleg kröfulýsing er mikilvæg til þess að þeir framleiðsluaðilar sem leitað er til geri sér grein fyrir umfangi verksins og eigi auðveldara með að gera raunhæft tilboð. Sjá hefur þróað aðferð til að greina og bera saman innsend tilboð og skilar samantekt til viðskiptavinarins.
Af hverju val á vefumsjónarkerfi?
Mikill fjöldi vefumsjónarkerfa er í boði á Íslandi í dag. Þessi kerfi eru misjöfn hvað varðar umfang og getu þó svo að á yfirborðinu virðist þau mjög sambærileg. Það getur því reynst þrautinni þyngra að velja rétta kerfið. Aðferð Sjá er til þess gerð að bera saman kerfin og tilboðin út frá settum kröfum og þeim þörfum sem liggja fyrir. Það reynist því mun auðveldara að velja rétta kerfið.
Hvenær á nota þjónustuna?
- Þegar fyrir liggur að velja á heppilegt vefumsjónarkerfi
Við skilum:
- Kröfulýsingu sem tilboð framleiðsluaðila byggja á
- Tillögu að heppilegum samstarfsaðilum
- Samanburðarhæfri töflu yfir innsend tilboð
- Greinagerð um tilboðin
- Mælt er með vefumsjónarkerfi og samstarfsaðila sé óskað eftir því

Viðskiptavinir sem hafa nýtt þjónustuna:
Félagasamtök, sveitarfélög, opinberar stofnanir, lífeyrissjóðir og einkafyrirtæki.
Umfang verkefnis:
Umfang vinnustunda er um 1 vika, sem þó dreifist yfir lengra tímabil – oftast um mánuð.

