Venjulegt útlit Breyta stillingum
Sleppa leiðarkerfi
Mínar stillingar - hnappurSendu okkur fyrirspurn   Venjulegt letur Stærra letur Breyta litum á bakgrunn og texta   Minni skjábreidd (800 dílar) Venjuleg skjábreidd (1024 dílar) Meiri skjábreidd (1280 dílar)   Orðalisti/Orðskýringar Sjá   RSS Veita Sjá   This page in English


 
Sjá ehf.
Þjónusta
Viðskiptavinir
Greinar og fróðleikur

Fyrirspurnir
Sendu okkur fyrirspurn

Vefstjóri til leigu

Hvað er það?

Sjá tekur að sér uppfærslu efnis á vefjum fyrirtækja og stofnanna. Hvort sem að uppfærsla á vef er ör eða ekki getur verið hentugt að láta okkur sjá um að uppfæra vefinn reglulega.

Sjá getur einnig tekið að sér að uppfæra ákveðinn hluta vefjar. Til dæmis þá hluta vefja sem sjaldan eru uppfæir eða þar sem uppfærsla er tímafrek. Þetta sparar tíma fyrir vefstjóra fyrirtækisins og leyfir honum að einbeita sér að daglegum verkefnum en Sjá getur verið honum innan handar í sérverkefnum.

Af hverju að taka vefstjóra á leigu?

Það getur verið árangursríkara þegar fólk innanhúss hefur ekki tíma til að sinna þessu verkefni. Þrátt fyrir það að fæstum finnist mikið mál að uppfæra vefi þá er það oftast tímafrekt. Oft er um tímabundið ástand að ræða og þörf á að fá hjálp við innsetningu á nýju efni aðeins í skamman tíma og þá hentar einnig vel að nýta þennan kost.

Hvenær á að nýta vefstjóra til leigu?

  • Þegar þú hefur ekki tíma til að uppfæra
  • Þegar efnisinnsetning er óvenju mikil tímabundið
  • Þegar verulega mikilvægt er að efni sé uppfært reglulega og ekki starfsfólk laust í slíkt hjá fyrirtækinu

Viðskiptavinir sem hafa notað þetta:

Einkafyrirtæki, sveitarfélög, hagsmunafélög og fyrirtæki í feaþjónustu.

Umfang verkefnis:

Umfangið hefur verið allt frá því að taka 1-2 daga og upp í nokkra mánuði. Við skilum tilboði eftir að hafa heyrt aðeins um bakgrunn og umfang frá viðkomandi fyrirtæki.


 
Gagnleg usability tips
Skoða skýrslu
Notendaprófanir
Skráðu þig
Námskeið í aðgengismálum
Viltu vita meira um bætt aðgengi að Netinu?

RSS fréttir
 
Vottun fyrir forgang IVottun fyrir forgang II