Segja má að viðskiptavinir Sjá komi úr öllum geirum, bæði er um að ræða fyrirtæki sem eru í mikilli vefþróun og eins fyrirtæki sem halda úti einfaldri vefsíðu. Sjá hefur unnið fjölda verkefna fyrir banka og fjármálastofnanir sem og opinbera geirann, en þar má nefna bæði sveitarfélög og eins stærri og minni ríkisstofnanir.
Á þeim tíma sem Sjá hefur starfað hefur safnast gríðarleg reynsla sem ráðgjöf Sjá byggir á og viðskiptavinir okkar búa að. Sjá vinnur með ólíkum fyrirtækjum sem hafa að sama skapi mjög ólíkar þarfir. Sem dæmi um verkefni má nefna:
Fyrirtæki í mikilli vefþróun:
- prófanir með notendum
- styttri úttektir (skemmri tími)
- verkefnastjórnun
Einstök verkefni:
- sniðin að þörfum viðkomandi
- prófanir með notendum og sérfræðingamat
- stefnumótun, þarfagreining, útboð
Fjöldi fyrirtækja hefur leitað til Sjá með aðstoð við að gera vefi sína aðgengilega öllum. Í kjölfarið á ítarlegri aðgengisúttekt fá þeir vefir sem standast kröfur um aðgengi vottun þar um, en Sjá vottar aðgengilega vefi í samstarfi við Öryrkjabandalag Íslands.

