Vefur Tollstjórans í Reykjavík vottaður

Nýlega var vefur Tollstjórans í Reykjavík vottaður aðgengilegur af SJÁ og Öryrkjabandalagi Íslands. Fékk vefurinn vottun um forgang 1 og 2. Vottun um forgang 1 er lágmarkskrafa sem gerð er verðandi aðgengi á vefsíðum.

Mikil vinna hefur verið lögð í að gera vefinn sem aðgengilegastan fyrir sem flesta notendur enda samræmist það stefnu ríkisstjórnarinnar um upplýsingasamfélagið. Einnig hefur vefurinn verið endurhannaður bæði hvað varðar útlit og kóða. Við hjá SJÁ óskum við Tollstjóranum í Reykjavík innilega til hamingju með nýja vefinn sinn.