Ný heimasíða Krabbameinsfélags Íslands

Úr fréttatilkynningu Krabbameinsfélagsins

Heilbrigðisráðherra opnar nýja heimasíðu Krabbameinsfélags Íslands.

Álfheiður Ingadóttir heilbrigðisráðherra opnaði í dag nýja og endurbætta heimasíðu Krabbameinsfélags Íslands að viðstöddum stjórnendum og starfsfólki félagsins. Heimasíðan er mikilvægt tæki fyrir þá sem leita upplýsinga um krabbamein og sem þurfa að nýta sér þjónustu Krabbameinsfélagsins.

Með sama hætti og Krabbameinsfélagið vill vera í fylkingarbrjósti í baráttunni gegn krabbameini á Íslandi vill félagið að heimasíða þess verði miðstöð þekkingar og upplýsinga um krabbamein.

Þegar Álfheiður Ingadóttir heilbrigðisráðherra opnaði síðuna sagðist hún sjálf hafa komið í leitarstöð félagsins nokkuð reglulega frá því að hún var 20 ára og þær heimsóknir hefðu skipt sköpum í hennar lífi. „ Ég hvet alla en þó sérstaklega ungar konur til að vera duglegar að kynna sér vefinn og að mæta reglulega í skoðun hjá Krabbameinsfélaginu. Vefurinn er miðill unga fólksins, þess vegna vænti ég þess að nýr og viðmótsþýður vefur Krabbameinsfélagsins gagnist vel til að koma upplýsingum og fræðslu til nýrra kynslóða.“

Vinna við nýju síðuna hefur staðið í tvö ár í samstarfi við fyrirtækið Sjá ehf. en vefurinn byggir á WebMaster sem er íslensk hugbúnaðarlasusn frá TM Software. Við undirbúning síðunnar var meðal annars leitað álits fólks sem greinst hefur með krabbamein, aðstandendur, aðildarfélög Krabbameinsfélagsins og fagfólks. Unnin var ítarleg þarfagreining sem skilaði Krabbameinsfélaginu vefstefnu þar sem hlutverk vefsíðunnar í starfsemi félagsins er skilgreint og hvernig vefsíðan nýtist best í þágu félagsins og þeirra sem notafæra sér þjónustu þess.


Heilbrigðisráðherra opnar nýjan vef Krabbameinsfélags Íslands. Frá vinstri, Álfheiður Ingadóttir heilbrigðisráðherra, Gísli Þorsteinsson frá TM Software, Guðrún Agnarsdóttir forstjóri KÍ, Jóhanna Símonardóttir frá Sjá og Sigríður Snæbjörnsdóttir formaður KÍ.

Á síðunni er lögð áhersla á einfalda og þægilega framsetningu á fræðslu um krabbamein og upplýsingum um þjónustu Krabbameinsfélagsins. Meðal annars er hægt að panta tíma í krabbameinsleit og gerast styrktaraðili Krabbameinsfélagsins í gegnum síðuna.

„Ég bind miklar vonir við að ný heimasíða auki og bæti tengsl okkar við þá sem nýta sér þjónustu Krabbameinsfélagsins og þá ekki síst yngri kynslóðina. Heimasíðan á að vera síungur og lifandi miðill sem tengir Krabbameinsfélag Íslands við íslensku þjóðina og það umhverfi sem við störfum í,“ segir Sigríður Snæbjörnsdóttir formaður Krabbameinsfélags Íslands.