Námskeið í vefstjórnun

Okkur langar að vekja athygli þína á námskeiði í vefstjórnun sem SJÁ stendur að í samvinnu við Fagmennt Opna háskólans.  Boðið er upp á 51 klst. nám í vefstjórnun fyrir þá sem vilja kynna sér það nýjasta sem er að gerast í vefmálum í dag. Námskeiðið hentar vel starfandi vefstjórum og þeim sem hafa hug á að starfa við vefstjórnun.

Í nútímasamfélagi skiptir miklu máli fyrir fyrirtæki að vera með góða og sýnilega heimasíðu. Á námskeiðinu er farið er yfir allt þeð helsta sem er að gerast í vefmálum í dag, nýjar aðferðir og hvað er að skila bestum árangri. Farið er m.a. yfir grafíska hönnun, verkefnastjórnun (Agile aðferðafræðin), innihald vefja, aðgengismál vefja, nytsemi og öryggi. Mikilvægt er að vefstjórarar hafi góða yfirsýn og þekki allt það helsta sem er að gerast í vefmálum og hvaða aðferðir eru að skila góðum árangri.

Markmið námskeiðsins er að þátttakendur nái góðri yfirsýn yfir hvaða þáttum vefstjórar þurfa að sinna í starfi sínu til að ná árangri.

Leiðbeinendur eru ýmsir aðilar úr atvinnulífinu með sérþekkingu í vefstjórnun.

Nánari upplýsingar um námskeið í vefstjórnun.