Jafnvægi vinnu og einkalífs

Ryan Carson skrifar sniðugan pistil um mikilvægi þess að huga að jafnvægi á milli vinnu og einkalífs. Hann gefur góð ráð í því samhengi sem fylgja hér.

  1. Farðu á réttum tíma úr vinnunni – það er auðvelt að vinna aðeins lengur en reyndu að gera það ekki.
  2. Hugsaðu um að innleiða 4 daga vinnuviku – lengdu helgina.
  3. Skrifaðu niður hugmyndirnar þínar fyrir vinnuna þegar þú ert heima – og framkvæmdu þær svo á mánudaginn.
  4. Skipulegðu Ævintýradag – veldu einn helgardag og gerðu að ævintýradegi, engar skyldur bara skemmtun.
  5. Vaknaðu snemma ef þú þarft að vinna – vertu búinn þegar restin af fjölskyldunni fer á fætur.
  6. Vertu með sérstakan vinnusíma – það er allt of auðvelt að athuga póstinn sinn í símanum.
  7. Lokaðu skrifstofudyrunum á kvöldin og um helgar – ekki láta freistast.
  8. Fáðu þér áhugamál sem krakkarnir geta verið með í – getur verið hvað sem er, bara að allir skemmti sér.
  9. Ekki fara með fartölvuna í fríið – amk. ein fullkomin afslöppun á ári.

Einnig er hægt að lesa allann pistilinn hérna.