Fara beint í efni

Notendamiðuð ráðgjöf

Við sérhæfum okkur í að greina þarfir notenda, prófa vefi og lausnir. Sjá veitir notendamiðaða ráðgjöf sem styður við stefnumótun og hönnun. Ráðgjöf okkar byggir á gögnum og skilar árangri.

Modern workspace
Jóhanna Símonardóttir og Áslaug Friðriksdóttir, stofnendur Sjá

Jóhanna Símonardóttir og Áslaug Friðriksdóttir

Stofnendur og ráðgjafar hjá Sjá

Um Sjá

Sjá hefur verið leiðandi á sviði notendarannsókna og aðgengismála frá árinu 2001. Fyrirtækið sérhæfir sig í að prófa vefi, lausnir og viðmót með raunverulegum notendum til að greina hindranir og bæta upplifun.

Sjá veitir óháða ráðgjöf við þarfagreiningu og stefnumótun stafrænnar þjónustu og hefur starfað með fjölda fyrirtækja við að móta notendamiðaðar lausnir. Með gagnadrifnum rannsóknum og prófunum nýtir Sjá innsýn í hegðun notenda til að bæta hönnun, virkni og notagildi.

Þjónusta okkar

Við brúum bilið á milli fyrirtækja og notenda. Í fjölda ára höfum við rannsakað notendahegðun og unnið með fyrirtækjum við að bæta þjónustu. Hjá Sjá sérsníðum við okkar ráðgjöf að þörfum viðskiptavina.

Ráðgjöf

Sjá veitir faglega ráðgjöf byggða á áralangri reynslu og þekkingu. Ráðgjöf okkar er óháð og tekur mið af rannsóknum á hegðun og þörfum notenda.

Stefnumótun

Sjá hjálpar fyrirtækjum að móta skýra stefnu og setja markmið sem skila árangri. Við tökum að okkur að leiða hvers kyns stefnumótun eða styðja stjórnendur í slíkri vegferð.

Stafræn framtíð

Sjá hefur mikla reynslu í að leiða fyrirtæki og stofnanir í gegnum þetta breytingaferli og sníður ráðgjöf að hverjum og einum viðskiptavini.

Notendarannsóknir

Fáðu innsýn í þarfir, hegðun og markmið notenda. Notendarannsóknir mynda traustan grunn fyrir upplýstar ákvarðanir í hönnun og þróun. Við beitum fjölbreyttum aðferðum í okkar rannsóknum - vinnustofur, viðtöl, kannanir, prófanir úttektir ofl.

Notendaprófanir

Viltu skilja upplifun raunverulegra notenda? Með því að prófa snemma og reglulega finnum við hvað virkar vel og hvað þarf að bæta – þannig tryggjum við árangur og betri notendaupplifun.

Notendaprófanir með gervigreind

Fáðu niðurstöður snemma í hönnunarferlinu. Við búum til gervigreindarpersónur sem líkjast raunverulegum notendum og leiðum þær um viðmótið á lausninni. Aðferðin hentar vel til að finna vandamál í orðalagi, flæði og óljósar forsendur.

Gervigreind er gott innlegg í undirbúning en kemur ekki í stað raunverulegra notenda.

Aðgengi

Við tryggjum að allir notendur geti notað lausnirnar þínar. Við leggjum áherslu á aðgengismál í okkar ráðgjöf auk þess að gera aðgengisúttektir. Ráðgjöf Sjá tekur mið að alþjóðlegum stöðlum WCAG og miðar að því að búa til betri upplifun fyrir alla.

sja11yNýjung

Sja11y — Aðgengisúttekt

Sja11y sameinar sjálfvirka skönnun og gervigreindargreiningu til að meta vefi gagnvart WCAG 2.2 stöðlum. Fáðu einkunn fyrir aðgengi á þínum vef ásamt skýrum tillögum að úrbótum á nokkrum mínútum - og stöðugt eftirlit yfir árið.

Gagnlegt innlegg í þróun en kemur ekki í staðinn fyrir fullgilda handvirka úttekt eða notendaprófanir.

Verkefni okkar

Á undanförnum árum höfum við unnið að fjölbreyttum verkefnum fyrir opinberar stofnanir og sveitarfélög. Hér eru nokkur dæmi um verkefni sem við höfum leitt eða komið að.

2024-2025
Alþingi

Endurskoðun á vef Alþingis

Stefnumótun og þarfagreining fyrir nýjan vef Alþingis. Mjög umfangsmikið verkefni þar sem aðferðum hönnunarhugsunar er beitt í gegnum allt ferlið og þarfir notenda hafðar í forgrunni. Framkvæmdar voru ítarlegar notendarannsóknir sem fólu í sér vinnustofur, viðtöl við hagaðila innan jafnt sem utan Alþingis og framkvæmd netkönnunar (yfir 2000 svör bárust). Verkefnið er enn í vinnslu.

2024
Menningar- og viðskiptamálaráðuneyti

Greining á þörfum fatlaðs fólks fyrir vörur og hugbúnað sem byggja á máltækni

Samstarfsverkefni menningar- og viðskiptaráðuneytis, ÖBÍ réttindasamtaka og Sjá. Verkefnið byggði á notendamiðaðri nálgun, haldnir voru rýnifundir og tekin viðtöl við notendur með ólíka fötlun, rýnifundur þar sem leiddir voru saman fulltrúar þróunaraðila máltæknilausna og fatlaðir notendur slíkra lausna auk þess að framkvæmd var netkönnun. Skoða skýrslu.

2023-24
SSH - Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu

Útivistarvefur höfuðborgarsvæðisins

Þarfagreining og kröfulýsing fyrir nýjan útivistarvef höfuðborgarsvæðisins. Gögn sem sveitarfélögin skrá í tengslum við útivistarsvæði sem og göngu- og hjólaleiðir voru greind og jafnframt tekin viðtöl við fulltrúa sveitarfélaganna. Haldinn var rýnifundur með fulltrúum íbúa sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu. Skoða Út um allt - útivistarvef höfuðborgarsvæðisins.

2022-24
Vegagerðin

Nýr vefur Vegagerðarinnar

Ítarleg ferlagreining þar sem rætt var við helstu hagaðila um hvaða upplýsingar og virkni þurfi að vera til staðar á vef Vegagerðarinnar. Haldnar voru vinnustofur með fulltrúum helstu sviða og deilda og viðtöl tekin við fulltrúa helstu markhópa. Framkvæmd notendaprófana og aðgengisúttektar. Skoða vef Vegagerðarinnar.

2023-2024
Hafnarfjörður

Nýir vefir grunnskóla Hafnarfjarðar

Þarfagreining fyrir nýja vefi grunnskóla Hafnarfjarðar. Sjónarmið notendamiðaðrar hönnunar voru höfð að leiðarljósi, haldnir rýnifundir og vinnustofur með helstu hagaðilum. Framkvæmdar voru notendaprófanir í gegnum allt ferlið, á fyrri vefjum, veftré og uppbyggingu, útlitsskissum og á fullunum vefjum. Skoða yfirlit yfir vefi allra grunnskóla í Hafnarfirði.

2021-22
Seðlabanki Íslands

Nýr vefur Seðlabanka Íslands

Stefnumótun, þarfagreining, kröfulýsing og útboð fyrir nýjan vef Seðlabanka Íslands. Verkefnið var mjög umfangsmikið en unnið var eftir aðferðum hönnunarhugsunar í gegnum allt ferlið þar sem þarfir notenda voru hafðar að leiðarljósi. Haldnar voru vinnustofur og hönnunarfundir, viðtöl við hagaðila innan sem utan Seðlabankans, framkvæmd netkönnun. Skoða vef Seðlabanka Íslands.

Hafðu samband

Við hlökkum til að heyra frá þér og ræða hvernig við getum hjálpað þínu fyrirtæki.