Könnunin Hvað er spunnið í opinbera vefi hefur nú verið send út. Úttektin er mikilvægt tæki til að meta gæði og fylgjast með þróun opinberra vefja. Eins og fyrr er áhersla á að innihald, nytsemi, aðgengi, þjónustu og lýðræðislega þátttöku auk öryggis opinberra vefja. Þetta er í sjöunda sinn sem könnunin er framkvæmd, en hún hefur farið fram annað hvert ár frá 2005.
Könnunin er send á opinberar stofnanir, en alls eru um 255 vefir teknir út. Óskað er eftir því að tengiliðir stofnana svari spurningum tengdum vef stofnunarinnar og yfirfari mat sem Sjá framkvæmdi á vefjunum. Við hvetjum allar stofnanir til að svara könnuninni og hafa samband ef einhverjar spurningar vakna.
Niðurstöður könnunarinnar verða kynntar á UT daginn, þann 30. nóvember nk.