Úttekt á opinberum vefjum hafin í fimmta sinn

Nú stendur yfir úttekt á um 270 opinberum vefjum ráðuneyta, stofnana og sveitarfélaga. Slík úttekt hefur verið gerð á tveggja ára fresti frá 2005 og er hún mikilvægt tæki til að fylgjast með þróun opinberra vefja með tilliti til innihalds þeirra, nytsemi, aðgengis fyrir blinda og sjónskerta, þjónustu og möguleika almennings til lýðræðislegrar þátttöku á vefjum.

Að úttektinni standa innanríkisráðuneytið og Samband íslenskra sveitarfélaga. Sjá kemur að úttektinni nú í fjórða sinn og annast framkvæmd hennar.

Continue reading