The Open Coffee Club á Íslandi

Opni kaffiklúbburinn (The Open Coffee Club) er fyrirbæri sem er nú virkt um allan heim. Nú hefur verið stofnaður klúbbur á Íslandi og eru allir hvattir til að vera með. Klúbburinn var settur á laggirnar til að hvetja frumkvöðla, forritara og fjárfesta til að hittast, spjalla saman, hitta aðra í svipaðri stöðu og mynda tengslanet. Alla fimmtudagsmorgna klukkan 8-9 mun Opni kaffiklúbburinn hittast á Kaffitári, Bankastræti. Aðaláhersla fundanna er Netið þó auðvitað megi spjalla um önnur mál.  


Hnignandi geta miðaldra notenda á Netinu

Í nýjustu rannsókn sinni  fjallar Jakob Nielsen um þá staðreynd að eftir því sem Netnotendur verði eldri, minnki nokkuð geta þeirra til að framkvæma verkefni á Netinu. Þetta skiptir máli í hönnun vefja, sérstaklega þegar um söluvefi er að ræða. Þekktir eru þeir vefir sem selja til dæmis ferðir fyrir eldri borgara en bjóða upp á allt of lítið letur eða leiðarkerfi sem er erfitt fyrir þá sem  eru farnir að missa hreyfigetu o.fl. 

Continue reading