Úrslit íslensku vefverðlaunanna

Í gærkvöldi voru Íslensku vefverðlaunin 2008 veitt í Listasafni Reykjavíkur að lokinni vel heppnaðri vefráðstefnu SVEF. Hátt á annaðhundrað vefir voru tilnefndir til þátttöku og veitt voru verðlaun og viðurkenningar í alls átta flokkum.

Úrslitin urðu þau að Siminn.is var valinn besti íslenski vefurinn 2008 ásamt því að fá verðlaun fyrir besta útlit og viðmót. Aðrir vefir til að vinna verðlaun voru: Icelandair.is fyrir að vera besti sölu- og þjónustuvefurinn; Póstur.is var valinn besti fyrirtækjavefurinn; kvikmyndir.is fékk verðlaun sem besti afþreyingarvefurinn; akranes.is var valinn besti vefurinn í almannaþjónustu; 24×24.is var valinn besti einstaklingsvefurinn og að lokum var isafoldtravel.is valinn besti vefurinn í flokknum bjartasta vonin.

SJÁ óskar verðlaunhöfum innilega til hamingju.