Nú stendur yfir úttekt á um 270 opinberum vefjum ráðuneyta, stofnana og sveitarfélaga. Slík úttekt hefur verið gerð á tveggja ára fresti frá 2005 og er hún mikilvægt tæki til að fylgjast með þróun opinberra vefja með tilliti til innihalds þeirra, nytsemi, aðgengis fyrir blinda og sjónskerta, þjónustu og möguleika almennings til lýðræðislegrar þátttöku á vefjum.
Að úttektinni standa innanríkisráðuneytið og Samband íslenskra sveitarfélaga. Sjá kemur að úttektinni nú í fjórða sinn og annast framkvæmd hennar.
Árið 2011 voru í fyrsta skipti veittar viðurkenningar fyrir besta ríkisvefinn og besta sveitarfélagavefinn þegar niðurstöður könnunarinnar voru birtar. Ákveðið hefur verið að veita einnig slíkar viðurkenningar í tengslum við könnunina í ár.
Niðurstöður könnunarinnar verða kynntar á Degi upplýsingatækninnar 28. nóvember næstkomandi og verða þá einnig veittar viðurkenningar fyrir bestu vefina.