Sjá og FagMennt Opna háskólans bjóða upp á hagnýtt námskeið í vefstjórnun sem hefst í febrúar 2009. Kennt verður í Háskólanum í Reykjavík á mánudögum og miðvikudögum frá klukkan 16:30 til 19:30. Námskeiðið er 51 klukkustund í heildina.
Í nútímasamfélagi skiptir miklu máli fyrir fyrirtæki að vera með góða og sýnilegar heimasíður. Farið er yfir allt þeð helsta sem er að gerast í vefmálum í dag, nýjar aðferðir og hvað er að skila bestum árangri. Mikilvægt er að vefstjórarar hafi góða yfirsýn og þekki allt það helsta sem er að gerast í vefmálum og hvaða aðferðir eru að skila góðum árangri. Leiðbeinendur eru ýmsir aðilar úr atvinnulífinu með sérþekkingu í vefstjórnun.
Markmið er að þeir sem námskeiðið sitja nái góðri yfirsýn yfir hvaða þáttum vefstjórar þurfa að sinna í starfi sínu til að ná árangri.
Námskeiðið skiptist í eftirfarandi hluta:
- Um netnotkun
- Veftækni
- Grafísk hönnun
- Stefnumótun og þarfagreining
- Verkefnastjórnun – Agile aðferðafræðin
- Innihald vefja
- Lokaðir vefir
- Aðgengismál vefja
- Nytsemi og aðgengi
- Öryggi / Lögfræði
- Stafræn markaðssetning
- Mælingar
Námskeið fyrri ára hafa mælst vel fyrir og er mál manna að þau hafi gagnast vel í atvinnulífinu, styrkt sambönd innan þess og aukið þekkingu og sjálfstraust í vinnubrögðum.
Nánari upplýsingar og skráning á námskeiðið