Er einfaldleikinn málið?

Í sífellt flóknari heimi þar sem upplýsingar streyma að fólki úr öllum áttum má gera ráð fyrir að nú fari fókusinn að færast í átt að einfaldleika. Í tækni- og vefgeiranum má gera ráð fyrir að menn fókusi frekar á núverandi þarfir frekar en að reyna að taka tillit til alls þess sem gæti gerst á næstu mánuðum eða árum. Þetta á sérstaklega við þegar notast er við hugbúnað sem þjónustu (e. software as a service), þá má alltaf bæta við þegar við á.

Hér má sjá skemmtilega umfjöllun á þessum nótum frá Gerry McGovern.


Notendur eru óþolinmóðir

Enn og aftur kemst Gerry McGovern að kjarna málsins í nýjasta pistlinum sínum.  Notendur eru óþolinmóðir og með ákveðin verkefni í huga þegar þeir heimsækja vefi.  Þeir vilja ekki láta leiða sig af leið með auglýsingum og markaðsefni eða tilgangslausu hjali. Hann fjallar um tilraun Google til að breyta upphafssíðu leitarvélarinnar með ekki góðum árangri.  Lesið greinina hér.


Bestu innri vefirnir 2011

Jakob Nielsen fjallar enn um innri vefi og hvernig önnur lögmál eiga að hluta við um þau en ytri vefi fyrirtækja og stofnana. Nú kemur hann inn á aukningu í notkun Sharepoint kerfisins (eða sambærilegra kerfa) undir innri vefi og hvernig það getur auðveldað smíði og innleiðingu. Þrátt fyrir það að byggja á sama undirliggjandi kerfinu eru innri vefir samt ólíkir í uppbyggingu og innihaldi enda fer það algerlega eftir eðli og starfsemi fyrirtækis hvernig innri vefurinn er.

Hann auglýsir einnig eftir tilnefningum fyrir samkeppni um besta innri vefinn 2011.  Á þinn innri vefur erindi?


Fullkomin skilaboð

Nú í upphafi sumars er gott að fara yfir það hvernig hin fullkomni „ég er fjarverandi“ tölvupóstur lítur út. Í nýlegri grein á Fastcompany.com er farið yfir möguleikana. Hvernig er best að gera þetta? Kasta öllu á samstarfsfélaga, lofa tafarlausum svörum daginn sem þú kemur aftur  eða bara gefa upp farsímanúmerið sitt?  Kíkið á greinina hér.


Notendur of jákvæðir?

Við hjá Sjá könnumst vel við það að fylgjast með notendum í prófunum eiga í mestu erfiðleikum með að finna upplýsingar og nota vefi sem er verið að skoða en eru engu að síður mjög jákvæðir þegar upp er staðið og finnst vefurinn jafnvel „fínn og þægilegur í notkun“.  Ástæðan er sú að notendur vilja oftast ekki dæma eða vera of neikvæðir í garð þeirra sem eiga vefinn og eins tilhneiging notenda til að kenna sjálfum sér um þegar illa gengur (ég skoða svo lítið svona vefi, ég er svo vitlaus í svona, ég er óvön/óvanur…o.s.frv.).  Micheal Wilson kemur inn á þetta í nýlegu bloggi á Uxboot.com.  Einmitt þess vegna er mikilvægt að fylgjast vel með notendum og taka niður athugasemdir um það sem ekki gekk sem skildi. Það sem notandinn segir endurspeglar ekki endilega það sem gerðist í raun og veru.